lengi lifir í gömlum glæðum...

fimmtudagur, desember 29, 2005

Nýtt blogg

HÆ hæ, er búin að flytja mig um set - vonandi að ég verði duglegri að blogga þar :)
en slóðin er http://www.blog.central.is/hildursolveig endilega kíkið við!

mánudagur, júní 27, 2005

Öflugt sumar

Þetta sumar stefnir í að vera bara alveg ágætt.... :)
Það sem af er sumars hef ég m.a. afrekað eftirfarandi:
1) Farið til Spánar og m.a. hlustað á R.E.M. (sorry Davíð... varð bara að rub it in einu sinni enn!)
2)Farið í þrjú útskrifarpartý (Kristín og Guðný, mamma og Bjarki Steinn - Til hamingju!!!!)
3) Farið upp á Molda og Heimaklett
4) Keypt mér kort í Þrek!
5) Djammað á Lundanum og Hressingarskálanum
6) Kíkt í Nauthólsvíkina :)

Það sem er til stefnu....
1) Ferð út í Elliðaey á laugardaginn
2) Goslokadjamm í skvísusundi næstu helgi
3) Flutningar á nýja heimilið mitt, Sólhlíð 7
3) Stuðmannaball 9. júlí
4) Fullt af fjallgöngum og útiveru
5) ÞÞÞÞJJJJÓÓÓÐÐÐHHHÁÁÁTTTÍÍÍÐÐ!!!!!!!

Gaman, gaman gaman....

þriðjudagur, júní 14, 2005

Ferðasagan mikla!

Þá er komið að því sem allir hafa beðið spenntir eftir.. :)
Eftir REM tónleikana var haldið heim (þó svo fæstir tónleikagestir hafi verið á þeim nótum - (spurning um að hanga aðeins lengur og fylgjast með crowdinu NÆST) en amk þegar komið var heim voru menn orðnir ansi þreyttir og því var haldið í rekkjuna óvenju snemma.... Svo þessa vikuna voru 2 skýjaðir dagar og voru þeir nýttir í að skoða mallið í grenndinni vel, en svo var reynt að liggja í sólinni og baka sig eða skutla sér í ískalda sundlaugina á sólardögunum, kvöldin voru svo nýtt í að borða svakalega góðan mat, rölta á kvöldmörkuðunum, kíkja í tívolíið og spila pool og þar fram eftir götunum..... s.s. eins og einn frægur maður sagði þrisvar.. BARA SKEMMTILEGT!...
Svo rann upp miðvikudagur í seinni vikunni, þá lögðum við af stað um 2 til Alicante eftir að hafa bakað okkur einum of í sólinni, þar var gerð hörð leit að Nike factory store sem bar ekki mikinn árangur, en í staðinn voru bara ýmsar aðrar búðir skoðaðar og etið á Pizza Hut ;)
Svo um átta leyti fórum við á flugvöllinn til að sækja Eyrúnu og Davíð..........

...... Úfff þetta er orðinn svo langur pistill að ég er varla að nenna að halda áfram að skrifa, hvað þá að fólk eigi eftir að nenna að halda áfram að lesa! Anyways....

....... Þá var farið um kvöldið með þeim út að borða og dagurinn á eftir tekinn rólega með smá skoðunarferð um nágrennið og ég held meira að segja að við höfum farið þennan dag út að hlaupa!! nokkuð öflugt lið... En næsta dag var haldið á markaðinn og ýmislegt skoðað og prúttað. En svo um kvöldið grilluðu strákarnir þvílíkt gómsæta máltíð handa okkur stelpunum og m.a.s. grillaðir bananar í eftirrétt! Svo síðar um kvöldið var skellt sér á PACHA sem er eitt heitasta diskótekið þarna úti og það varð allt froðuvitlaust upp úr 3, (hef aldrei farið á svona froðudiskó áður) en þetta er himnaríki allra perverta, þú getir klipið og strokið eins og þú vilt og enginn sér neitt!!!! HE HE HE HE svo voru líka allir með vatnsbyssur, ef maður var ekki orðinn nógu blautur fyrir!!! En svo var maður að skríða heim á sjöunda tímanum - STUÐKVÖLD

En annars gerðist ekkert mikið merkilegt annað, JÚ við fórum í geðveikan skemmtigarð á sunnudeginum hjá Benidorm (ég þorði reyndar ekki í stærstu tækin) en man! þetta var geðveikt! Vorum í garðinum frá 10.00 til 20.00 frekar öflugur dagur þar sem var farið í vatnsrússíbana, klappað ljónsunga, farið í klessubíló osfrv....

Svo síðasta daginn voru nýjustu gæludýrin keypt og var mikið stress að smygla þeim til landsins á lífi ;) En gambagóa og Ross Skywalker (Davíð og Eyrún eiga hann) eru við góða heilsu í dag.... s.s. við keyptum sitthvora skjaldbökuna....vei!

Jæja omg ég held að enginn hafi nennt að lesa hingað þannig að það tekur því varla að kveðja......Adios amigos!!!

laugardagur, maí 28, 2005

R.E.M. TÓNLEIKAR

Thad var lagt af stad a Keflavikurflugvoll um hálf tíu á midvikudagsmorgun, búid ad skvera alla íbúdina og gera allt tilbúid fyrir brottfor. Thad var óvenju lítid verslad í Fríhofninni, heill snickerspoki og coke til ad hafa med í flugvélinni. Flugferdin var ágaet ad tví undandskildu ad audvitad fekk eg saeti sem ekki var haegt ad halla aftur!!! come on.. en jaeja tá var bara ad bida eftir tvi ad flugvelin taeki af stad.... en... nei thad var thriggja kortera tof, af tví ad auk thess ad kunna ekki ad tala ensku, ta virdast spanverjar heldur ekki kunna ad telja (samt agaetisfolk :) ) en thad sakadi ekki, var svo anaegd ad vera ad komast i fri ad thad skipti mig engu mali!
Svo komum vid út, flott vedur fyrsta daginn en samt farid varlega í oll sólbod, thannig ad vid kíktum í stórmarkadinn til ad versla og vitidi hvad... haldidi ad thar inni hafi ekki verid auglýsing um ad stórhljómsveitin R.E.M. aetli ad vera med tonleika annad kvold, t.e. 27. maí og thad hér í Torrevieja og nánast í bakgardinum okkar..... thannig ad thad var ekki hikad vid ad kaupa midana. Og í gaerkvoldi um hálf níu héldum vid af stad labbandi ad parque antonio soria og thvílíka mannhafid... og tónleikarnir voru rosalegir, mjog flott sýning og í heildina mjog flott tonlist!! A day to remember :)

sunnudagur, maí 22, 2005

3 DAGAR Í SPÁN!! can u believe it?

Tíminn líður hratt... á gervihnattaöld.... já það er satt, mér finnst eins og það hafi verið í gær þegar ég sagði við sjálfa mig að nú væri komin tími til að spíta í lófana því það væru aðeins 4 vikur í próf!!! En nú eru öll próf búin og aðeins nokkrir dagar þar til ég verð sleikjandi sólina á suðrænni slóðum :) Annars er ég nú búin að vera dugleg að því sjálf hérna í höfuðborginni...
Sendi Sindra heim til að byrja að vinna og ég varð eftir til að þrífa íbúðina (já, alveg rétt þarf að fara að klára það dæmi) er bara búin að vera dugleg að æfa svo maður líti ágætlega út á sundfötunum, og inn á milli hef ég skutlað mér í pottana þar sem ég keypti mér kort í sundlaugum Reykjavíkur og það er sko búið að borga sig!! Er komin með þokkalegasta far :)
Svo er ég búin að vera í Eurovision stemmningu yfir helgina hjá pabba og þvílíku veislurnar, spurning um að allar æfingarnar hafi farið fyrir bí...

miðvikudagur, maí 11, 2005

Ég hlakka svo til..ég hlakka alltaf svo til...

Jamm.. búin með fyrra verklega prófið mitt. Það gekk ágætlega í morgun, var reyndar megastressuð eins og venjulega fyrir þess konar próf.
Núna bý ég meira eða minna í skógahlíðinni að æfa mig í að toga og teygja samnemendur mína, og ég get ekki beðið eftir laugardeginum...
Annað í fréttum, ég er nokkuð ánægð með þennan nýja fjölmiðil sem er komin í dagsljósið, Blaðið er í raun snilldaruppfinning, temmilega mikið af fréttum, íþróttum, slúðri, gagnlegri vitneskju og öllu þessu troðið í eitt blað, ég s.s. spara mér áskrift af morgunblaðinu, séð og heyrt, lifandi vísindum, vikunni með því að fá þetta yndi til mín alla virka daga og það fríkeypis! Tær snilld!
L8er

þriðjudagur, maí 10, 2005

Prófatörn

Aðeins 15 dagar í Spán, maður er orðin frekar spenntur!!! En verð að passa að láta ekki hugann reika alltof langt frá skólabókunum.... Ég komst að því ,,the hard way" í gær að það gekk ekki á þessari önn að læra ekkert yfir alla önnina og reyna svo að massa prófin, geri það ekki aftur :(
Anyways annars lítið í fréttum á tvö verkleg próf eftir þannig að þetta er allt saman að koma..